Lundey ns-14

Heimasíða áhafnar á Lundey ns-14

Flettingar í dag: 125
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 113
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 398305
Samtals gestir: 145807
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:20:21

Færslur: 2012 Febrúar

29.02.2012 13:18

Heim í heiðardalinn

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær. Lundey hélt úr höfn á Akranesi um kvöldmatarleitið í gær að löndun lokinni. Stutt var á miðin sem eru núna uþb. á miðjum Faxaflóa, en það er nú eins og það er með veðrið, sjaldan er ein báran stök. Þær hafa að minsta kosti verið margar í röð hér undanfarið. Eftir ævintíri næturinnar, bæði brælu og bras, er gamli bláus kominn á fullu ferðina heim í heiðardalinn, þar sem betur megandi þegnar þjóðfélagsins eyða hluta úr sumrinu við að pína lax á öngli, sem sagt  VOPNAFJÖRÐUR. Væntanlegur komutími þangað er ekki á hreinu, en áætlaður siglingartími er rúmir 30 tímar.  

 Fagraberg FD 1210 út af Hnappavöllum  á dögunum


 Víkiingur AK 100  á miðunum út af Hafnarbergi í fyrradag. Jóna Eðvalds í bakgrunni.



          Hér má sjá tvö makrílseiði sem komu með í nótina, en við höfum verið að sjá eitt og eitt seiði með loðnunni. Þetta segir okkur að hér eru makrílseiði á ferðinni og að hann er að alast upp hér uppi í landsteinum hjá okkur.

Veitustjóri þakkar og kveður að sinni................BK................


28.02.2012 08:53

Löndun á Akranesi..

Góðann og bargblessaðan daginn lesendur nær og fjær. Snemma í gærmorgun háldu lundarnir á flóann eftir fyrstu hrognalöndun ársins. Úti fyrir Sandvíkinni á Reykjanesi var fyrnamikil torfa sem skipin voru að snúast á, eins og raunar kom fram hér í gær. Veðrið var ágætt en þungur sjór. Eftir hádegið fóru skipin að kasta og var góður gangur í veiðunum. Lundarnir tóku tvö köst sem dugðu í þann gamla bláa og með það héldum við rakleitt á skagann til löndunnar. Löndun hófst strax í gærkvöldi og í skrifuðum orðum er löndun í fullum gangi og mun endast eitthvað frammeftir degi.


  Að veiðum út af Reykjanesi í gær.   Beitir NK 123, Finnur Fríði FD 86 og Júpíter FD 42



 Hér má sjá mynd sem tekin er af dýptarmæli hjá okkur, þegar farið var yfir torfuna í gærmorgun.


 Jóna Eðvalds SF 200  klárir að kasta í gær.
 
Veitustjóri kveður og þakkar fyrir sig.........................BK................



27.02.2012 12:18

Kvika og ógnarlóð við Reykjanes.

Góðan daginn!
Við lónum nú vestur af Reykjanesi í kviku og kaldaskít.  Hér er gríðarlegt magn af loðnu á ferðinni og lóðið sem við sjáum er mjög sterkt, raunar svo sterkt að reyndustu menn hika við að kasta á ósköpin í þeim veðuraðstæðum sem nú eru, en hætt er við að sprengja næturnar í aðstæðum sem þessum.
Ég tok nokkrar myndir í síðasta túr á myndavél sem hér fannst í kassa.


Haukur Laxdal Baldvinsson stýrimaður dregur nótina.


Hann Ingibergur Hraundal hefur farið fáeinar vertíðr á loðnu, hef ekki fengið nákvæma tölu, en sjálfur fór ég fyrst með honum á loðnu árið 1997 og var þá Bubbi búinn að vera lengi að á loðnu.


Guðlaugur Rúnar yfirvélstjóri klár í slaginn.

Við bíðum nú eftir að kallað verði ,,KLÁRIR!!!" veður og sjólag þarf þó að batna örlítið til að svo geti orðið.

GVIL

25.02.2012 10:32

Eru Hrognin að koma?

Góðan dag góðir lesendur.
Hann Bubbi Morthens söng hér um árið um hrognin.  Ekkert íslenskt skáld hefur hvorki fyrr eða síðar ort um loðnuhrogn og vertíðina kring um þau.
Í þessum skrifuðu orðum erum við einmitt að undirbúa skipið undir loðnuhrognavertíð, búið að þrífa allar lestar og klóra þær með sterkri klórblöndu og fá klórinn inn í allar lagnir er tengjast lestunum.  Höfum við stautað við þetta frá því kl 9 í gærkvöldi og eru karlarnir að þrífa öftustu lestina akkúrat núna 14 tímum síðar.


Loðan í skyljara.

Það er lítið um myndir núna.  Aðal myndasmiðurinn hann Börkur Kjartansson er í fríi og kemur næst, þá lagast þetta hjá okkur.
Við bíðum núna leyfis að hefja veiðar, það er verið að rýma hráefnistanka á Akranesi til að hafa klárar undir loðnuhratið sem til fellur við hrognaframleiðsluna og tankarými á Vopnafirði er fullt.  Ekki þarf að taka fram að Loðnubræðslurnar eru keyrðar á útopnu.
Hér eru allnokkur skip að veiðum og mikið að sjá af loðnu.

GVIL

20.02.2012 05:48

Bolludagur

Góðan dag kæru lesendur nær og fjær.
Við sluppum frá bryggju hálffimm í morgun og siglum nú rösklega suðurfyrir land að loðnuslóðir.  Það er eins gott að slá vel í klárinn, því loðnan er á gríðarlegri hraðferð vestureftir og er komin að Eyjum.  Sennilega verður hún komin á Faxaflóann um helgina og hrognafrysting hlýtur að fara að hefjast á allra næstu dögum, því hrognafyllingin hjá okkur í síðasta túr var 19,5% að sögn hins nákvæma mælingarmanns Hauks Laxdal hrossabónda í Tungu.  Haukur þessi hefur þann starfa með höndum að vega og meta aflann eftir kúnstarinnar reglum og nánst gefa söluupplýsingar til frystihússins um gæði aflans.  Hefur reynsla hans sem hrossaprangara nýst afar vel í þessu starfi.


Það styttist í hrognaveisluna, spurning hvort markaðsaðstæður leyfa mikla hrognatöku.

Í tilefni dagsins var bakað hér um borð um helgina og eru bollurnar í röðum inn í kæli og bíða eftir að verða kokgleyptar af svöngum Lundverjum.
Hinsvegar var undirritaður ekki með neina myndavél og því grípum við til þess ráðs að birta mynd sem tekin var hér um borð fyrir ,,fáeinum" árum, þegar skipið var gert út frá Reykjavík og bar nafnið Narfi RE.  Þessi mynd birtist á Togarasíðu Hafliða Óskarssonar vinar okkar.


Hér er Þorsteinn Gíslason Bryti á Narfa RE að mæla þykktina á bolludeiginu.


Við kveðjum í bili.

GVIL

18.02.2012 17:23

Ísaður lundi

Góðan og blessaðan dagin lesendur nær og fjær. Þá er Lundey NS 14 komin í höfn á Vopnafirði eftir leiðinda brælu fyrir austfjörðum. Verið er að landa úr  félaga Faxa, síðan munu Bræður bretta ermar enn lengra upp og gúffa upp úr lundanum. Eru vonir bundnar til að aflinn nái 1100 tonnum en þess má geta að af þeim 13 túrum sem búnir eru á þessu ári hefur bara einu sinni verið landað fullfermi eða rúmun 1500 tonnum. 


  Úti fyrir austfjörðum voru 18 m/sek.  hauga sjór og frost.


 Það voru fleiri öldungar en blái öldungurinn á ferðinni í morgun. 
 Hér er Sigurður VE 15 með fullfermi á leið til Þórshafnar.


  Faxi RE 9 við löndunarbryggjuna í dag. Eitthvað pus hefur verið á móti hjá þeim.


  Veitustjóri lætur staðar numið í bili og kveður.......................................BK.......

17.02.2012 19:38

Fullur Lundi

 Kvöldið kæru landsmenn. Þá er sá gamli blái orðinn fullur. Vinir okkar á Faxa sáu aumir á okkur í morgun og gáfu okkur afgang úr sinni nót áður en þeir héldu til löndunnar, hafi þeir bestu þakkir fyrir. Eftir hádegið var síðan komið grænt ljós á að hefja veiðar og fóru leikar þannig að sá gamli er núna á hraðferð austur með suðurströndinni á leið til Vopnafjarðar með góðan vinnsluskammt. Má eiga von á okkur í námunda við viktarskúrinn undir hádegið. Loðnan er á hraðferð vestur með landinu og vorum við að veiðum undan Skarðsfjörunni, en hrognafylling er komin í 19,5% samkvæmt áreiðanlegum mælingum á rannsóknarstofu Lundanns.


 Drengirnir á Lundanum komnir á spena hjá Faxa


  Sighvatur Bjarnason siglir hjá, kominn með góðan skammt.


  Veitustjóri kveður og þakkar fyrir sig...................................BK.............

17.02.2012 08:54

Beðið á rauðu ljósi

Góðan og blessaðan daginn landsmenn nær og fjær.  Lundey hélt úr höfn á Vopnafirði seinnipartinn í gær, eða um svipað leiti og skrifstofumenn héldu til síns heim eftir erfiðan dag. Þá var lokið 30 tíma löndun í vinnslu. Nú í morgunsárið erum við komnir á miðin við Skarðsfjöru í þessu fína veðri. Skipin eru að kasta en við látum reka á rauðu ljósi, þe. veiðunum er stjórnað úr landi til að vinnslan fái sem ferskarst hráefni. Ingunn er að landa á Vopnafirði, Víkingur í Fuglafirði og Faxi er á veiðum eftir að rauða ljósið hjá þeim skipti yfir í grænt. Þegar hráefnisöfluninni er stýrt á þennann hátt er eitt af lykilatriðunum að samvinnan sé góð og farið sé eftir fyrirmælum, því fari einn ekki eftir fyrirmælum kemur það niður á hinum og skapar óánægju. Annars er það helsti flöskuhálsinn í dag, að þótt bræðslur séu keyrðar á fullum afköstum, eru þau ekki nóg til að hafa undan þeim afla sem berst á land. Þótt stór hluti aflanns fari í vinnslu á Vopnafirði fer alltaf hluti í bræðslu. Þar sem við kælum aflann fyrir vinnsluna erum við um leið að hægja á afköstum bræðslunnar því afköstin aukast fái aflinn að brotna aðeins niður.
Undanfarið hefur verið nokkur umræða um aldur fiskiskipaflota Íslendinga og er það vel. Við þykjumst vera einhver fremsta fiskveiðiþjóð í heimi en siglum á vafalaust einum elsta fiskiskipaflota í heimi.
Í Morgunblaðinu í dag er grein "Öryggið í öndvegi í stöðugt eldri flota"  Þar telja Friðrik J Arngrímsson og Sævar Gunnarsson ekki ástæðu til að óttast öryggismál fiskiskipaflotanns allmennt. Það vona ég að sé rétt, en það segir sig sjálft að skip sem eru kanski 50 ára gömul eru allt önnur hönnun en ný. Ég ætla rétt að vona að einhver þróun hafi orðið síðustu 50 árin í hönnun skipa hvað varðar öryggi, aðbúnað eða hagkvæmni. Þegar gömul skip eru teygð og toguð gefur auga leið að þau verða ekki ný hönnun þótt ýmsu sé hægt að breyta. Að sjálfsögðu gildir það sama um aðbúnað áhafnar en það vill svo til að kröfur um aðbúnað ag hollustuhætti á vinnustað eru aðrar en fyrir 50 árum. Það á líka að vera forgangs atriði að aflinn komi sem ferskastur og best með farinn að landi.
 Það er ekki hægt að sjá að forsvarsmenn sjómanna og útgerðarmanna hafi komið mikið um borð í þessi skip, það væri þá helst þegar skálað er fyrir "nýju" skipi sem væri þá um 10-15 ára.


 Faxinn  beygir á partrollinu 2009    
 Faxinn er um 11 m breiður en sambærileg nýsmíði í dag myndi vera um 14 m breið.


 Að lokum er svo ein mynd af Bjarna Ólafssyni AK 70 á Lónsbugtinni um daginn.


Veitustjóri á reki þakkar fyrir sig og kveður í dag....................................BK...................

14.02.2012 20:07

Með vinnsluskammt.

Góða kvöldið ungir jafnt sem gamlir, læsir sem lesblindir.  Hér á Lundey höfum við verið að veiðum, síðasta sólarhringinn, með hléum þó. Loðnan er á fullri ferð vestur með landinu og voru skipin að kasta út af Hvappavalla ósi nú undir kvöldið. Hrognafyllingin er komin í um og yfir16% svo það styttist óðum í hrognatökuna. Sá gamli er núna á fullu ferðinni til Vopnafjarðar og verðum við þar væntanlega í fyrramálið með blautann vinnsluskammt. Heldur hefur okkur þótt gusta um okkur þennann túrinnn þótt vindur hafi verið frekar hagstæður hvað brælu varðar. Má geta þess að vindmælirinn um borð sló í 48 m/sek. í hviðum í nótt.


 Júpíter ÞH 363


 Þorsteinn ÞH 360
 
 Á útleiðinni mættum við tveimur Þórshafnarskipum með fullfermi á leið til heimahafnar.

 Vindblásnar kveðjur af þeim gamla...............................................BK............
 

13.02.2012 20:40

Mættir á miðin.

Góða kvöldið landsmenn góðir til sjávar og sveita. Gamli bláus hélt til hafs í morgunsárið og erum við í þessum skrifuð orðum orðum á miðunum. Mok veið hefur verið og höfum við mætt tómum skipum á leið á miðin og síðan hlöðnum skipum á leið til löndunnar.


  Aðalsteinn Jónsson SU 111 á leið á miðin


 Nýjasta skip Íslenska flotanns Börkur NK 122 á leið á loðnumiðin við Hornafjörð, Papey í baksýn.


Veitustjóra kveðjur að sinni.......................BK...

12.02.2012 13:16

Af þeim gamla bláa.

Góðan og blessaðan daginn landsmenn utan lands sem innan. Héðan af lundanum er allt sæmilegt að frétta. Vorum mættir á Vopnafjörð í gærmorgun með slatta sem var pumpað í snarheitum á land, og héldum við rakleitt á miðin aftur með fulla vatns og olíutanka. Snemma í morgun voru kallarnir mættir og tóku tvö köst, sem skiluðu okkur einum 750 tonnum. Eftir það var komin bræla og vorum við farnir að halda sjó þegar ákveðið var að fara með aflann í land. Við erum því á fulluferðinni til Vopnafjarðar í skrifuðum orðum og verðum þar í kvöld.


 Hér er hinn Færeyski Finnur Fríði að draga á Lónsbugtinni


 Finnur Fríði kominn á ferðina í kviku.........Aðalsteinn Jónsson fjær.



 Finnur Fríði og Aðalsteinn Jónsson


  Sigurður VE 15


  Sigurður VE 15


 Héldum sjó um tíma í morgun ásamt Þorsteini ÞH 360


 Veitustjóra kveðjur af gamla bláusi...............................BK...........................

10.02.2012 10:26

Af bláa öldungnum

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær. Héðan af bláa öldungnum er allt gott að frétta ef frá er talið aflaleysi.... en hálfgert stand hefur verið á loðnunni. Nú erum við komnir suður á Lónsbugtina og virðist hún vera að skríða á grunnið. Einnig hafa verið brælur reglulega, svo við höfum ekki verið mjög uppteknir við að kasta, höfum þó kastað tvisvar með sæmilegum árangri. Raunar hefur astikið verið að stríða líka, orðið fjærsýnt greyið.


  Nýjasta uppsjávarskip Íslenska flotanns, Börkur NK 122 í morgun.


 Börkur NK 122


Aðalsteinn Jónsson SU í morgun.



 Grænlenska skipið Erika  á miðunum í gær.


 Huginn VE í gær.


  Sigurður VE  að draga.     Finnur Fríði á bak við, Erika framan við.

Veitustjóri þakkar fyrir sig og kveður...............................BK...............
 
Ps. Á vefslóðinni: togarar.123.is  í gær, má sjá mynd sem tekin var um borð í  Narfa, nú Lundey.

08.02.2012 09:54

Lundinn á hafinu.

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær. Það er af okkur köllunum á Lundey að segja, að við tókum grunnnótina um borð og losuðum okkur við frímerkið sem hefur verið notað á Breiðafirðinum. Við lönduðum 1500 tonnum á Akranesi á mánudaginn og höfum verið að dóla okkur austur með landinu, en veðrið hefur verið frekar leiðinlegt og sjólagið eftir því. Nú í skrifuðum orðum erum við að snúast úr af Reyðarfirði en ekkert spennandi er í stöðunni. 
Mál málanna undanfarna daga hefur verið tap lífeyrissjóða landsmanna, en eins og við var að búast er ekki hægt að kenna neinu um nema svokölluðu hruni, aðstæðum og óheppni......  Í samtökum lífeyrissjóða eru 33 sjóðir en rúml. þrefallt hærri tölu heyrði ég um daginn, sama hvort er. Núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnir hafa talað út í eitt um sparnað og hagræðingu, meðal annars með fækkun sveitarfélaga, Íslendingar eru rúm 300.000 og ætti ekki að þurfa að vera þvílíkur fjöldi lífeyrissjóða. Mætti þá spara í stjórnum þeirra og ferðakostnaði við "vinnuferðir". Ljóst er að eitthvað verður að gera, þetta eru jú okkar fjármunir sem menn hafa verið að gambla með.
 Nú er líka upplausnarástand í Kópavogi vegna falls meirihluta bæjarstjórnar. Er þá ekki upplagt að sameina bara Kópavog og Reykjavík, Jón Gnarr veit ekki af því að stjórna Kópavogi líka......??? Það væri þá spurning með nafn á sveitarfélaginu þar sem sveitarfélögin eiga helst að heita --- bær eða --- byggð.  Kanski væri nöfnin Kópavíkurbyggð eða Reykjavogsbær við hæfi ???
Að lokum óskum við félögum okkar á nýjum Berki NK til hamingju með nýtt skip sem kemur væntanlega til heimahafnar í dag. Gamli Börkur verður áfram í útgerð, amk um sinn og fær nafnið Birtingur.  

 Börkur NK 122 fær nafni Birtingur NK 124


Torbas verður Börkur NK 122                                                                           Mynd af interneti.


Veitustjóri þakkar fyrir sig og kveður............................BK..............

04.02.2012 09:46

Gamli bláus fullur.

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær. Við höfum verið að toga 40-50 mílur ANA úr Langanesinu í ágætis veðri þar til í nótt. Í morgunsárið var komin bræla og leiðinda veður. Veiðarnar hafa gengið  vel, og eftir snarpar sköfur í gær og nótt er gamli bláus fullur. Stefnan hefur verið sett á Akranes, suðurleiðina og ekki gott að segja hvað siglingin tekur langan tíma.


 Lundey 2010

Veitustjóra kveðjur af Lundanum....................BK.....................

03.02.2012 09:09

Trollið komið í hafið aftur.

Góðan dag landsmenn nær og fjær. Eftir þvæling fyrir norðurlandi sem skilaði okkur litlu, er trollið komið í hafið NA af Langanesi. Þar sem við erum bara með grunnnót um borð töldu menn ekki spennandi að reyna frekar fyrir norðan, og raunar eru þeir sem þar voru aðrir en við, komnir annað, enda veiði í djúpnót fyrir SA landi ef veður leyfir.


 Kristina EA á togi fyrir nokkrum dögum.

Veitustjóri þakkar fyrir sig að sinni.......................BK............

clockhere

Lundey NS-14

Farsími:

8512116

Um:

Fyrri nöfn:Narfi RE,Jón kjartans og Guðrún Þorkellsdóttir SU. Lundey var smíðað árið 1960 sem síðutogari og hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðan þá. Það var endurbyggt árið 1998 og er uppsjávarskip í dag.

Tenglar