|
Lundey ns-14 Heimasíða áhafnar á Lundey ns-14 |
|
|
Flettingar í dag: 248 Gestir í dag: 131 Flettingar í gær: 397 Gestir í gær: 169 Samtals flettingar: 373361 Samtals gestir: 134125 Tölur uppfærðar: 9.2.2012 20:11:52 07.09.2010 11:31Á nýju kvótaári.Góðan og marg-marg-marg-blessaðann daginn. Eftir smá rekistefnu og nokkrar áskoranir var tekin ákvörðun um að endurnýja síðuna og reyna að halda út einhverri starfsemi á ritstjórnarskrifstofunni. Það er af okkur að segja að við erum að partrolla á móti Faxa, og erum á öðru holi. Í nótt voru settir rúmir tveir og hálfur lundi í blá baukinn og standa vonir til að fá annað eins í dag þótt væntingavísitalan hafi vissulega lækkað eftir tómt bras með veiðarfærin í morgun. Hjá okkur hefur verið kaldaskítur og komið hefur fyrir að sést hefur til þoku og þá ekki sést neitt... Við erum annað skipið sem tökum afla með partrolli, Ingunn er í löndun og kemur síðan sem hleri á móti Faxa. Eins og flestir vita hefur verið mjög hlítt og gott veður undanfarið, sérstaklega á norðausturlandi, Vopnafjörður hefur ekki farið varhluta af blíðunni og í næst-síðustu löndunn brugðu starfsmenn sér í listitúr á tuðrunni og tóku nokkrar myndir af því tilefni. Hér sést Lundey liggja við kantinn framan við verksmiðju HB Granda. Veitustjóri kveður að sinni og þakkar fyrir í dag.....BK... Skrifað af Veitustjóra |
Vafraðu umclockhere Lundey NS-14 Farsími: 8512116Um: Fyrri nöfn:Narfi RE,Jón kjartans og Guðrún Þorkellsdóttir SU. Lundey var smíðað árið 1960 sem síðutogari og hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðan þá. Það var endurbyggt árið 1998 og er uppsjávarskip í dag.Eldra efni
Tenglar
|