Lundey ns-14

Heimasíða áhafnar á Lundey ns-14

Flettingar í dag: 125
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 113
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 398305
Samtals gestir: 145807
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:20:21

06.12.2011 10:06

Vetrarríki.

Góðan og blessaðan daginn lesendur jafnt kaldir sem heitir. Héðan af Lundey er lítið að frétta þessa dagana. Við liggjum klárir við Ásgarðinn og bíðum spenntir eftir að komast á loðnuna. Stóra nótin komin um borð og allt klárt. Veðurspárnar eru heldur óhagstæðar þessa dagana og þótt "beeelgjaan" segi frá einhverjum gríðar torfum hafa skipin ekki orðið vör við mikið magn, enda veðrið ekki neitt sérstakt til að leita heldur. Faxi og Ingunn eru á miðunum og hafa lítið aðhafst ennþá.
  Þegar lundarnir voru á leið til skips var frekar kuldalegt við "Nupo" land


 "Mývatnssveitin er æði"  segir í textanum, frekar þótti okkur kuldalegt þar er við áttum leið um.

Veitustjóri kveður að sinni og þakkar fyrir sig....................BK...............


01.12.2011 07:27

Síldarlöndun á Vopna.

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær.
  Lundey er enn í löndun á Vopnafirði. Má búast við að því ljúki með morgninum. Brottför hefur ekki verið ákveðin svo veitustjóri viti en Ingunn fer væntanlega í dag og Faxi í kvöld. Stefnan verður sett á loðnumiðin, hvar sem þau er að finna. 


Togað á Grænlandssundi.

Veitustjóri þakkar fyrir sig að sinni................................BK..............

30.11.2011 08:15

"Ritstjórnardeilur í höfn"

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær til sjávar og sveita.  Vegna fjölda áskorana ( amk. tveggja ) höfum við ákveðið að opna heimasíðu Lundeyjar  aftur.  Eftir stíf fundarhöld á ritstjórnarskrifstofunni  hefur verið gert heiðursmannasamkomulag um aðkomu fleiri aðila að fréttatilkynningum síðunnar. Er það von veitustjóra að aukin fjölbreytni skapist með aðkomu fleiri aðila, og að lesendur verði duglegri að viðra skoðanir sínar á ritverkunum á síðunni.

Þar sem engar fréttir hafa borist af okkur hér á síðunni er rétt að fara vítt yfir sviðið og fræða lesendur um hvað á daga okkar hefur drifið.

Kvóti í íslensk/norsku síldinni  kláraðist um miðjan október eftir einstaklega leiðinlegt október veðurfar.  Var þá haldið með veiðarfærin til borgar óttans þar sem þau voru sett á land til yfirhalningar.  Að því loknu var siglt yfir flóann og bundið vel á Akranesi,  þar sem ýmsu viðhaldi og endurbótum var sinnt. Er þar helst að nefna að stjórnborðs lunning framan við dráttarblökk var hækkuð og komið fyrir hækkuðum ristum á dekki stjórnborðs megin. 

Í byrjun nóvember var haldið til borgar óttans þar sem ný og gríðarstór nót var tekin um borð og síðan haldið til loðnuveiða á Grænlandssundi. Þær veiðar gengu svona upp og ofan, aðalega vegna brælu og loðnuleysis.  Þó hafa  kallarnir náð að kroppa upp ein 1700 tonn af loðnu. Síðasta föstudag var síðan stóra loðnu feldinum spólað í land á Vopnafirði og lítill síldarnótarbleðill tekinn um borð.  Snemma á laugardagsmorgun var síðan slegið í gamla bláus og stefnan sett vestur  fyrir land til síldveiða á Breiðafirði.  Í birtingu á sunnudag renndu  kallarnir inn á sundin við Kiðey og Hrútey.  Ekki var síldin þar og voru menn farnir að tala um brostnar vonir þegar fréttir bárust af síld inni á Breiðasundi. Þar var síðan nótin látin fara á álitlega torfu eftir hádegissteikina ( og ís á eftir ) Eftir drjúga dælingu voru allar lestar hjá okkur orðnar fullar og afgangnum dælt yfir í Vilhelm Þorsteinsson. Var síldin að okkar mati óvenju stór og góð, og ekki urðum við varir við mikla sýkingu í henni.  Auk okkar voru á sjúkrahúsvoginum við Stykkishólm Kap VE og Ásgrímur Halldórsson SF og voru þeir að fá góð köst sem Villinn naut líka góðs af og fékk afgang hjá öllum skipunum. Til Vopnafjarðar komum við síðan í gærmorgun til löndunar  á síðustu 850 tonnum Íslandssíldar af síldarkvóta HB Granda.  Að löndun lokinni munum við síðan halda loðnuveiðum áfram ef veður leyfir, en þessa stundina er veðurútlitið á Grænlandssundinu ekki neitt sérstakt næstu daga. Má segja að HB Grandi hafi verið með tvö skip samfellt á loðnumiðunum frá 1.október en þá héllt Víkingur til veiða. Loðnan virðist halda sig í kalda sjónum og þá helst undir ís, svo ekki hefur gengið að veiða hana. Vonast menn til að hún fari að ganga austur í Íslensku lögsöguna  á sinni hefðbundnu gönguleið austur fyrir land.


 Að vanda var myndavélin með í síðasta síldartúr. Hér er Kap VE 4 með kraumandi kast á síðunni á Sjúkrahúsvoginum við Stykkishólm.


Nótin látin fara, Ásgrímur Halldórsson að dæla yfir í  Vilhelm Þorsteinsson í baksýn. 


Kraumandi síldin í nótinni á síðunni.


Hér má sjá upphækkunina á lunningunni og "danspallin" innan við......Þvílíkur munur.


Háhyrningurinn lætur sig ekki vanta í veisluna.


 Kátir voru karlar með kóka kóla í hendi......


Traffik á miðunum.....Kap að dæla yfir í Villann.


Allt í góðu...frí frammundan.


Vilhelm að koma á stútinn hjá okkur.

Veitustjóri þakkar fyrir sig að sinni og kveður...............BK..........





02.09.2011 11:45

Lundinn á landleið.

Góðan og blessaðan daginn lesendur vítt og breitt. Makrílveiðarnar hjá okkur hafa gengið upp og ofan, en fiskurinn sá virðist vera farinn að týgja sig til brottfarar af Íslandsmiðum. Þó hefur verið hægt að ná í nokkra með síldinni. Tog gærdagsins skilaði nákvæmlega engu, en síðan höfum við tekið tvö hol og erum komnir með skammtinn, síldar og makrílblöndu. Veðrið hefur verið mjög gott en nú er kominn kaldaskítur. Við dólum okkur í land og munum taka við af Faxa sem er nú að landa, en biskupsstofan er komin á miðin og farin að toga.


  Hvernig skyldi nú heyskapurinn ganga hjá Hauki hrossabónda?


Veitustjóri þakkar fyrir sig og kveður að sinni..................BK..................

01.09.2011 10:22

Lundafréttir.....

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær. Héðan úr ritstjórn Lundanns er allt gott að frétta, við höfum hafið veiðar eftir snarpa löndun og erum byrjaðir á þriðja holi. Aflabrögð eru léleg, einhver 150 tonn, að mestu síld. Makríllinn virðist vera farinn að týgja sig til brottfarar af Íslandsmiðum.

   Undanfarna daga hafa allir fjölmiðlar verið fullir frétta af kaupum Huang Nubo á Grímstöðum á fjöllum. Lundafréttir hafa komist yfir leiniskýrslu sem birt var á síðunni whiskyleaks.com, þar sem sjá má vinnuplagg um áætlanir téðs kauphéðins hér á landi. 
   Eins og fjallað var um í fjölmiðlum á dögunum eru Kínverjar með áætlanir um að reisa norðurljósarannsóknarstöð hér á landi. Nú hafa Kínverjar fundið upp aðferð til að nýta norðurljósin sem orkugjafa og er meiningin að gera frekari tilraunir og þróanir hér á landi. Grímstaðir á fjöllum er upplagður staður í þetta verkefni vegna landrýmis, fjarlægðar frá truflandi aðstæðum til þessarra tilrauna og margs fleira. Stefnir hinn nýji landeigandi á að reisa gríðar stóra lakkrísverksmiðju á jörðinni og er stefnan að endurreisa verksmiðju sem er á lóð gömlu Kísiliðjunnar við Mývatn, til að framleiða vörubretti og umbúðir undir framleiðsluna. Framleiðslan mun verða mjög umhverfisvæn, græn á litinn og hefur fengið vinnuheitið Grímstaða-grænn. Þetta mun vera langtíma verkefni og kemur til með að tengjast stórskipahöfn í Finnafirði með lestarsamgöngum. Þannig verður framleiðslan flutt fersk á fljótlegann hátt norðurleiðina til Kína, en þar er sagður mikill vaxtarbroddur í sölu á umhverfisvænu sælgæti í framtíðinni. Þar sem verkefnið er stórt í sniðum er áætlað að einhverjar vinnubúðir verði reistar fyrir starfsfólk verksmiðjunnar, en reiknað er með að unnið verði á vöktum dag og nótt.
  Í þeim gögnum sem við öfluðum okkur kom líka fram viljayfirlýsing um að fyrirtækið sem áður hét Grænar lausnir og var staðsett í gömlu Kísiliðjunni, tæki að sér hönnun og smíði hluta vélbúnaðarinns, sem á að vinna orku úr norðurljósunum. Binda Kínverjar miklar vonir við þetta samvinnuverkefni.

Lundafréttir fyrstar, fremstar og umhverfirgrænar....


 Norðurljós.                                                            Mynd af interneti.


Kísiliðjan við Mývatn heitin...                                                         Mynd af interneti.


Veitustjóri kveður með stóriðjudrauma í huga...........................BK........

29.08.2011 10:31

Leitað að auðlindinni..

Góðan og margblessaðan daginn landsmenn allir, læsir jafnt sem ólæsir.  Frekar hefur verið rólegt yfir veiðum á Lundeynni síðasta sólarhringinn, hífðar voru eina 120 smálestir í nótt af makríl og þó aðalega síld. Heldur þykir okkur vera farið að halla undan fæti á makrílveiðunum. Nú er rassskellst um hafið og leitað fanga.
Um þessar mundir er mikið fjallað um að auðlindir lands og sjávar skuli vera sameign þjóðarinnar. Ósköp eru þetta nú falleg orð, eins og í Dýrin í Hálsaskógi, "Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir" Eitt er það vandamál sem kemur strax upp í hugan í þessu sambandi, en það er skilgreiningin á því hvað er auðlind. Sumt er óumdeilt, annað ekki, og það sem hingað til hefur talist auðlind er það kannski ekki og það sem ekki hefur verið talin auðlind getur hæglega talist það nú. Fiskurinn í sjónum er óumdeilanlega auðlind, heitt vatn í iðrum jarðar er auðlind, kallt vatn í ám og vötnum hefur hingað til ekki verið talin auðlind en er það óumdeilanlega, bæði sem fallorka og sem vatn. Náttúra landsins getur talist auðlind, en þá gæti komið upp spurningu um nýtingu auðlinda sem skerða aðrar auðlindir. Þessi dæmi eru alltaf að koma upp, td. þar sem virkjanir skerða notkunarmöguleika annarra auðlinda. Við getum sagt að ósnortin náttúra sé auðlind sem spillist með tilkomu mannvirkja, en eru þá ekki ferðamenn spilling á víðerninu og hinni óspilltu náttúru?  Það sem telst einskírs virði í dag getur orðið auðlind á morgun. Það hefur ekki mikið verið talað um lífríkið hér á landi í þessu sambandi, en eins og öllum ætti að vera kunnugt státum við af einstökum dýrastofnum, hvað varðar heilbrigði, litarafbrigði, stærð og margt fleira. Það er og verður mjög erfitt að skera úr um hvað telst auðlind og hvað ekki og eiga örugglega eftir að verða miklar deilur um þau mál í framtíðinni.


 Auðhumla, Ljómalind og allar hinar........


  Auðlind....fór í hamborgara...étin 2010...


 Makríll og síld....seld til austur-Evrópu.....étinn 2011



Veitustjóri kveður og þakkar fyrir sig.........BK.....

28.08.2011 08:23

Á miðunum.

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær. Lundey er komin á miðin í Hvalbakshallinu og búin að taka eitt hol. Afraksturinn er vægast sagt lélegur og er nú leitað fanga. Hér er nokkur fjöldi skipa og hefur verið meira og minna í allt sumar. Er búið að veiða hér óhemju magn af makríl á tiltölulega litlu svæði. Nú lítur út fyrir að veislan sé á enda. Já makríllinn hefur skilað þjóðarbúinu all-verulegum tekjum og á vonandi eftir að gera í framtíðinni, það er nefnilega útflutningur sjávarafurða og annarra framleiðsluvara sem skilar okkur tekjum. Þótt háskólamenntaðir menn, jafnvel háskólakennarar og prófisorar haldi fram að tekjur þjóðarinnar verði til við að selja hverju öðru vörur og þjónustu, og að hægt sé að fjármagna hin ýmsu verkefni með söfnunum og áheitum, kalli það síðan hagvöxt. Þær vörur sem við seljum úr landi skila okkur útfluttningstekjum, þær vörur sem við flitjum inn kosta okkur gjaldeyri á móti, mismunurinn segir til um hvort ríkið er rekið með hagnaði eða tapi. Eins og allir vita er komið að góðærisskuldadögum þjóðarinnar og nú þarf að skera niður og spara. Er þá ekki eðlilegast að skera niður kosnað þar sem hann skilar okkur minnstu? Við þurfum að hafa heilbrigðiskerfi, samgöngukerfi, menntakerfi, löggæslu og síðan er ótal annað sem við viljum ekki vera án. Þegar herðir að sultarólinni verðum við að spyrja okkur hvar viljum við skera niður, í heilbrigðiskerfinu?, löggæslunni?, menntakerfinu?, samgöngukerfinu?, menningu og listum?, eða þjóðkirkjunni? svo fátt eitt sé nefnt. Er réttlætanlegt að dæla fé í menningu og listir meðan heilbrigðiskerfið er á brauðfótum og öll tækjakaup fara framm með söfnunarfé frá góðhjörtuðu fólki sem oft á tíðum er ekki aflögu fært? Er eðlilegt að auka fjárveitingar til Hörpunnar meðan löggæslan og samgöngukerfið er í fjársvelti og öryggi borgaranna er í hættu?
Ja maður bara spyr sig.....


  Ásgrímur Halldórsson SF 250 á miðunum.


 Höfrungur III AK 250 var að koma úr millilöndun á Vopnafirði þergar við komum þangað til síðustu löndunar.
Bæði þessi skip eru dýrar fjárfestingar sem skila miklum verðmætum til þjóðarbúsins, hvernig er hægt að sýna framm á að tónlistarhús allra landsmanna skili verðmætum umfram kostnað til þjóðarbúsinns???



 Veitustjóri þakkar fyrir sig að sinni og kveður.......................BK...........

25.08.2011 11:03

Á landstími

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær.  Nú í morgunsárið var skammtinum náð og erum við því á leið til Vopnafjarðar eins og vera ber, verðum við þar væntanlega undir kvöldið. Við siglum móti norðan brælu sem hefur þó farið minkandi frá í morgun, en veðrið á miðunum hefur verið frekar leiðinlegt síðasta sólarhringin. Þykir okkur vera orðið frekar haustlegt á hafinu og erum við því bara nokkuð ánægðir með árangurinn í túrnum. Aflann fengum við í fjórum holum og er hann hreinn "eðal makríll".

 Síðasti túr gekk hálf brösuglega og voru menn við öllu búnir á dekkinu.



Veitustjóra kveðjur af héðan Lundeynni..............................BK.......................

24.08.2011 09:48

23. túr

Heilir og sælir lesendur góðir. Lundverjar eru komnir aftur til hafs og farnir að toga. Afrakstur úr einu holi er kominn í baukinn og er árangurinn ásættanlegur, hreinn makríll og eru þau tonn ekki eftir..
Yfirstandandi túr mun vera sá 23. frá því við hófum veiðar eftir sjómannadag og eru þær ófáar sjómílurnar sem sigldar hafa verið. Vorum við að áætla að bara stímin í júlí væru töluvert yfir 3000 mílur.

     Brasað í blíðunni í síðasta túr.


Veitustjóri þakkar fyrir og kveður í dag..........................BK.......

22.08.2011 09:46

Gúrkutíð.

Góðan og blessaðan daginn landsmenn nær og fjær. Þá er enn ein vinnuvikan hafin og menningarnótt búin. Spennufall virðist ríkja í öllum fjölmiðlum og er helst spiluð rólegheitaniðurdrepanditónlist... Það er helst að lifni yfir útvarpsmönnum er þeir fara að segja frá Líbíumönnum sem drepa hvurjir aðra....
Hér á  Lundey ríkir agúrkutíð líka, við erum að toga, trúlega síðasta hol, en erfiðlega hefur gengið að ná í fisk þennan túrinn. Nýjustu fregnir herma að við verðum í landi í kvöld eða nótt. Veðrið var framan af, svona hálfgerður ruglandi, en er nú komin renniblíða.

    Slöngurnar tamdar.

Veitustjóri þakkar að sinni og kveður....................................BK....................

20.08.2011 10:11

On the road again....

Heilir og sælir lesendur góðir til sjávar og sveita.    Að aflokinni löndun lögðu kallarnir á Lundanum úr höfn seint í gærkvöld og héldu sinn veg í rólegheitunum á miðin suðaustur af Hvalbaknum. Í skrifuðum orðum bíðum við á miðunum eftir grænu ljósi á að hefja veiðar, og eigum við ekki von á því fyrr en í fyrsta lagi í kvöld þar sem löndun úr Ingunni stendur yfir og Faxi er á leið í land með sinn skammt.
Nú um helgina stendur yfir mikil menningarhátíð í borg óttanns (menningarnótt), þar sem "Hítin" tónlistarhús allra landsmanna verður formlega tekið í notkun. Leiðum við að því líkum að mikill fjöldi fólks flykkist til borgarinnar til að berja herlegheitin augum..
Enn og aftur ( og ekki í síðasta sinn ) eru uppi umræður um að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Er það sannfæring mín og fleiri, að slíkt sé dauðadómur yfir innanlandsflugi á Íslandi, nema ríkið komi til aðstoðar sem er nú ekki líklegt. Þegar að því kemur ( það kemur að því ) er eins gott að landsbyggðin sé undir það búin, en að sjálfsögðu erum við að tala um mikið óhagræði og óöryggi fyrir dreifbýli landsinns. Eitt af því sem þarf að hafa í huga er að stytta tímann sem tekur að ferðast á milli staða / landshluta. Þéttbýlisstaðirnir verða ekki færðir og því styttist vegalengdin milli þeirra í beina línu ekki, hinsvegar er þjóðvegakerfið byggt upp með þeim ósköpum að það þarf að þræða á milli allra krumma skuða hringinn í kring um landið og nánast stoppa í hverjum þéttbýliskjarna. Ef við tökum sem dæmi að þú lesandi góður keyrir frá Egilstöðum til Keflavíkur, þá er sama hvora leiðina þú velur, þú þarft að þræða í gegn um fjölmarga þéttbýliskjarna.
 Norðurleiðin ( ég þekki hana betur ) : Egilstaðir - Fellabær...þéttbýli við Mývatn...þéttbýli við Lauga....gegn um Akureyri endilanga....Varmahlíð ( stöðvunarskilda 90°  beygja) .......Blönduós...... Bifröst...Borgarnes...Kjalarnes...Mosfellsbær...Reykjavík...Kópavogur....Hafnarfjörður ...Garðabær...Njarðvík...   Á öllum þessum stöðum verður að draga verulega úr hraða og / eða nánast stoppa.   Ekki myndi einusinni duga að sameina sveitarfélögin.....
 Með því að leggja þjóðvegina framhjá þeim stöðum þar sem það er mögulega hægt, er hægt að stytta ferðatímann verulega og auka umferðaöryggi til muna. Það er td. með ólíkindum að nýr vegur gegn um Bifröst skuli ekki hafa verið lagður í stokk eða að ekki sé lagður vegur með fjöruborðinu fram hjá Borgarnesi. Síðan eru nokkrir staðir þar sem stoppa þarf og / eða taka 90° beygju en ætti auðvitað að vera öfugt, hringvegurinn í forgang með afleggjara út úr.
Nú hyllir undir að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng fari að hefjast, og er það vel, en hefði ekki verið betra að fara undir Eyjafjörðinn og koma upp norðan við Akureyri? Slíkt hefði orðið mikið dýrara og kanski óframkvæmanlegt en mun eðlilegra og stuðlað að mun meira umferðaröryggi. Það er líka furðulegt að stjórnendur og allmenningur sveitarfélaga þar sem keyrt er í gegn, skuli ekki vera á móti þessari miklu umferð. Eina sveitarfélagið sem ég man eftir að hafi verið umræða um þessi mál í, er Kjalarnes, enda hafa þar orðið alvarleg slys. Þar hefur lausnin ekki verið að færa veginn, heldur að girða hann af og lækka hraðann.
Að lokum óskum við Vopnfirðingum til hamingju með nýja veginn sem vonandi, mjög fljótlega verður opnaður, þannig að þeir og aðrir landsmenn þurfi ekki að keyra þennan drulluslóða sem ekki er boðlegur hvorki á loka árum 20. aldar né á 21. öldinni.
Amen......

  Í tilefni af mennigarnótt.

***VeitustjórakveðjurafLundanum***......................BK.......



18.08.2011 10:27

Á landleið

Góðan og blessaðan daginn landsmenn nær og fjær.  Lundey stefnir nú til Vopnafjarðar með skamtinn og erum við væntanleg í höfn um hádegis bil. Aflinn fékkst í þremur holum og þótti okkur frekar treg veiði þótt við þurfum svo sem ekki að kvarta. Veðrið hefur verið ágætt, smá gjóla um tíma í gær.


Makríll


Veitustjóri þakkar fyrir sig í dag......................BK...............

17.08.2011 09:11

Ó jááá...

Góðan og blessaðann daginn lesendur til sjávar og sveita. Lundarnir slökuðu trolli í sjó í gærkvöldi og eru búnir að koma einu holi í kælingu. Eftir smá leit erum við farnir að toga aftur en sögur fara ekki af útliti.
 Nú styttist í að skólar hefjist og mun þá fjöldi ungs fólks hverfa frá sumarstörfum sínum og setjast á skólabekk. Samkvæmt heimasíðu vinnumálastofnunar voru 11.223 skráðir atvinnulausir í júlí, eða 6,6%.  Það ætti því ekki að verða vandamál að manna fiskvinslur og sláturhús landssins á komandi hausti....EÐA HVAÐ.. Undanfarnar vikur hefur mátt heyra í útvarpi viðtöl við ýmsa forsvarsmenn  hringinn í kring um landið, þar sem komið hefur fram að í viðkomandi sveitarfélagi sé atvinnuástand gott og skortur sé á húsnæði fyrir starfsfólk.  Síðastliðið vor voru vandræði að fá iðnaðarmenn og verkamenn til að vinna um borð í skipum og vinnslum sem undirbjuggu yfirstandandi síldar og makrílvertíð. Mörg dæmi eru um að þegar auglýst er eftir starfsfólki fást engin viðbrögð, mjög fáir eða engir sækja um. Þótt atvinnuleysisbætur séu nauðsinlegar er vitað mál að þær eru misnotaðar í stórum stíl. Þegar uppsjávarskip HB Granda hafa verið verkefnalaus hefur sjómönnum staðið til boða að mæta til vinnu og fá þá greidda tryggingu, en mæti þeir ekki til vinnu er litið svo á að þeir taki sér launalaust frí. Ég hef nú vanist því að fólk þurfi að mæta í vinnuna til að fá greidd laun, hef nú raunar talið það eðlilegt og sjálfsagt, en ef þú ert atvinnulaus getur þú skráð þig í gegn um tölvu og snúið þér svo á hina hliðina og haldið áfram að sofa. Ef maður skráir sig atvinnulausan, á maður að vera tilbúinn til að mæta til vinnu og þá held ég að einfallt væri að krefjast mætingar á ákveðna skráningarstaði og koma síðan á einhverri vinnuskildu. Það eru næg verkefni sem hægt væri að framkvæma, tína rusl og fegra umhverfið, moka snjó, aðstoða öryrkja og  gamallt fólk sem á erfitt, gróðursetja, svo eitthvað sé nefnt. Td. hafa fjölmiðlar farið mikinn um að höfuðborgin sé eins og órakaður útigangsmaður, illa hirt og sóðaleg. Það er allveg klárt mál að það myndi fækka verulega á atvinnuleysisskrá og menn færu frekar að leita sér að vinnu, ef einhverju svona kerfi yrði komið á. Eins og staðan er í dag sjá menn sér hag í að vera á bótum og vinna síðan svarta vinnu. Það þarf hugarfarsbreytinu til að breyta þessu, í dag finnst fólki ekkert athugavert við að vera á atvinnuleysisbótum og hafnar vinnu ef hún er ekki sniðin að þörfum þess. Það er ekkert skammarlegt og ekkert grín að vera atvinnulaus, en þegar hægt er að fá vinnu er annað uppi á teningnum. Það erum við hin sem greiðum skatta til samfélagsins sem borgum brúsan.
Eins og áður sagði verður fróðlegt að heyra fréttir að hvernig gengur að ráða starfsfólk til starfa í fiskvinnslurnar og sláturhúsin nú í haust.
 

Lundey NS 14 landar hjá HB Granda á Vopnafirði 2010

Hraunsrétt 2010



     Veitustjórakveðjur af Lundey.................................BK......................

16.08.2011 10:00

Að lokinni makríl löndun.

Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir til lands og sjávar. Við erum á útleið eftir rúmlega sólarhrings löndun á Vopnafirði þar sem bæði var landað síld og makríl. Það er nefnilega þannig með uppsjávarskipin amk. þau sem koma með kældan afla í land, að þau hafa ekki aðstöðu til að flokka aflann þótt menn vildu henda óæskilegum tegundum í það og það skiptið. Við vitum vel að alltaf slæðast einhverjir fiskar annarrar tegundar með, eins og sjá má á löndunarskýrslum, þó mismikið auðvitað. Það væri gaman að sjá einhvern samanburð á  hve miklum meðafla togaraflotinn, sem hefur verið á makrílveiðum hefur landað undanfarið, en yfirleitt eru skipin að veiðum á svipuðum slóðum. Þótt við teljum okkur vera að veiða hreinan makríl er alltaf eitthvað af síld með, kanski 5-10%. 
Það hefur verið í umræðunni af og til undanfarin ár að koma upp myndavélabúnaði um borð í skipum til að reyna að koma í veg fyrir brottkast, og sýnist sitt hverjum í þeim efnum. Það eru engin vandkvæði á að koma upp slíkum búnaði ef menn vilja láta sjómenn vinna undir stöðugum þrælsótta. Hinsvegar má líka líta á að stjórnun fiskveiða er þannig háttað að hún bíður upp á brottkast, til dæmis með því að leifa útgerðum sem eiga engar veiðiheimildir í síld, að veiða makríl. Eða skipum sem eru engan vegin útbúin fyrir þær veiðar eða kælingu aflans. Annars er það oftast svo að áhöfnum skipa er stjórnað úr landi þar sem aflamagn og samsetning er "ákveðin"  og er þá oft þægilegt að stiðjast við exelinn, síðan á áhöfnin að fara eftir þeim fyrirmælum þótt exelinn geri ekki ráð fyrir slæmum veðrum eða að fiskurinn hafi sporð til að sinda með.
Það er sorglegt að á 21. öldinni sé enn verið að henda afla fyrir borð og ólíðandi með öllu.



  Hreinn makríll !!!  Ef vel er að gáð má sjá einn urrara innan um makrílinn.




Veitustjórakveðjur........................................BK.......................

14.08.2011 10:02

Á landleið.

Góðan og blessaðan daginn landsmenn nær og fjær. Við lundarnir erum komir á landstím eftir snarpar sköfur þar sem ríkisskamturinn náðist bæði fljótt og vel. Við héldum til hafs sl. föstudags kvöld með leiðinda spá á bakinu en höfum verið nokkuð heppnir og fengið ágætis veður.  Í morgunsárið hífðum við síðasta holið og erum væntanlegir til Vopnafjarðar seinnipartinn í dag.


 Mynd frá því fyrr í sumar.

Veitustjóri þakkar fyrir sig að sinni..................................BK................
clockhere

Lundey NS-14

Farsími:

8512116

Um:

Fyrri nöfn:Narfi RE,Jón kjartans og Guðrún Þorkellsdóttir SU. Lundey var smíðað árið 1960 sem síðutogari og hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðan þá. Það var endurbyggt árið 1998 og er uppsjávarskip í dag.

Tenglar