Lundey ns-14

Heimasíða áhafnar á Lundey ns-14

Flettingar í dag: 125
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 113
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 398305
Samtals gestir: 145807
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:20:21

20.02.2012 05:48

Bolludagur

Góðan dag kæru lesendur nær og fjær.
Við sluppum frá bryggju hálffimm í morgun og siglum nú rösklega suðurfyrir land að loðnuslóðir.  Það er eins gott að slá vel í klárinn, því loðnan er á gríðarlegri hraðferð vestureftir og er komin að Eyjum.  Sennilega verður hún komin á Faxaflóann um helgina og hrognafrysting hlýtur að fara að hefjast á allra næstu dögum, því hrognafyllingin hjá okkur í síðasta túr var 19,5% að sögn hins nákvæma mælingarmanns Hauks Laxdal hrossabónda í Tungu.  Haukur þessi hefur þann starfa með höndum að vega og meta aflann eftir kúnstarinnar reglum og nánst gefa söluupplýsingar til frystihússins um gæði aflans.  Hefur reynsla hans sem hrossaprangara nýst afar vel í þessu starfi.


Það styttist í hrognaveisluna, spurning hvort markaðsaðstæður leyfa mikla hrognatöku.

Í tilefni dagsins var bakað hér um borð um helgina og eru bollurnar í röðum inn í kæli og bíða eftir að verða kokgleyptar af svöngum Lundverjum.
Hinsvegar var undirritaður ekki með neina myndavél og því grípum við til þess ráðs að birta mynd sem tekin var hér um borð fyrir ,,fáeinum" árum, þegar skipið var gert út frá Reykjavík og bar nafnið Narfi RE.  Þessi mynd birtist á Togarasíðu Hafliða Óskarssonar vinar okkar.


Hér er Þorsteinn Gíslason Bryti á Narfa RE að mæla þykktina á bolludeiginu.


Við kveðjum í bili.

GVIL

clockhere

Lundey NS-14

Farsími:

8512116

Um:

Fyrri nöfn:Narfi RE,Jón kjartans og Guðrún Þorkellsdóttir SU. Lundey var smíðað árið 1960 sem síðutogari og hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðan þá. Það var endurbyggt árið 1998 og er uppsjávarskip í dag.

Tenglar