Lundey ns-14

Heimasíða áhafnar á Lundey ns-14

Flettingar í dag: 51
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 399069
Samtals gestir: 146177
Tölur uppfærðar: 23.5.2012 14:41:28

23.05.2012 00:12

Vor.

Flórgoðinn mættur á tjörnina sína.

Glæsilegt par.

20.05.2012 00:43

Myndir 8.maí

Góðan og blessaðan daginn landsmenn nær og fjær. Eins og komið hefur fram hér á síðunni er Lundey bundin á skaganum ásamt hinum þremur uppsjávar skipum HB Granda. Unnið er að ýmiskonar lagfæringum neðan beðið er næstu verkefna sem verða síld og makrílveiðar. 
Þegar Lundey var sett á flot og siglt á skagann voru nokkrar myndir teknar í góða veðrinu, má sjá nokkrar af þeim hér.

  Grænlenski rækjutogarinn Markus frá Nuuk


  Þerney RE 101 innan á Bótarbryggjunni þar sem unnið er að töluverðum breytingum, endurbótum og endurnýjun.


  Örfirisey RE við Ægisgarð þar sem unnið er að viðhaldi og endurbótum.


   Venus HF 519 við Norðurgarð, að verða tilbúinn til veiða eftir bilun í spilmótor.


  Höfrungur III AK 250 í löndun við Norðurgarð að loknum fyrsta túr eftir slipp.


 Steinunn SF10  áður Helga RE, að landa við Grandabryggjuna.



  Helga RE 49  seld eða óseld ?

Veitustjóri þakkar og kveður...........................BK........

12.05.2012 12:11

Meðalaldurinn 35 ár.

Góðan og blessaðan daginn lesendur nær og fjær. Eins og kom fram í síðustu færslu var Lundey færð upp á skaga eftir slippinn. Þar verður  unnið að ýmsu viðhaldi og breytingum, ber þar hæst, að bætt verður við fleiri vacumlögnum, þe. í þær lestar sem eftir voru. Með komu Lundeyjar á skagann á þriðjudagskvöldið er allur uppsjávarfloti HB Granda í Akraneshöfn.
Í færslu hér fyrir nokkru kom fram að í maí séu 52 ár síðan Narfi RE 13 nú Lundey NS 14 kom til heimahafnar í Reykjavík í fyrsta skipti.  Narfi mun hafa komið til heimahafnar í fyrsta skipti á skírdag 14. apríl 1960 Rétt skal vera rétt, amk. landaði Narfi 188.303 kg. í Grimsby 5. maí 1960 samkvæmt sölutölum úr Ægi 1960.  En hverju skipta  nokkrir dagar á 52 árum ???
Það má líka geta þess að Víkingur AK 100 er jafn gamall, kom seinna á árinu og hefur borið sama nafn og númer síðan. Ef meðalaldur uppsjávarflota HB Granda er reiknaður kemur í ljós að hann er 35 ár. Það er því óhætt að segja að þar séu ekki neinir viðvaningar á ferð.


 Lundey undir löndunarkrananum á Akranesi í gær.

 Verið að leggja lokahönd á málningarvinnuna fyrir sjósetningu.


  Allt að verða klárt, búið að pússa skrúfuna og byrjað að falla að.


Veitustjóri þakkar fyrir sig og kveður.....................BK:.................

09.05.2012 10:28

komin í sparifötin og á flot.

Góðan daginn gestir og gangandi. Lundey var rennt á flot um kvöldmatarleitið í gær, það er á kvöldflóðinu, og gakk það áfallalaust fyrir sig sem von var. Héldum við síðan rakleitt upp á Akranes þar sem við komum til með að liggja framm yfir miðjan júní þegar haldið verður til síldar og makríl veiða. Tíminn verður notaður til að sinna ýmiskonar viðhaldi og breytingum.


 Lundey NS 14 að koma í höfn á Akranesi í gær.

Vonandi vinnst tími til að setja eitthvað meira hér inn á næstunni en að sinni þakkar veitustjóri fyrir sig og kveður.....................BK...........

05.05.2012 11:53

Páskarnir búnir.

Góðan og blessaðan daginn lesendur hér og þar.  Að loknum páskum og heilli kolmunavertíð þar sem farnir voru tveir snarpir túrar á gráa svæðið suður af Færeyjum, er Lundey komin á land í garði nýjasta hótels Reykjavíkur. Þessa dagan er verið að mála og skvera prinsessuna enda styttist í afmælisdaginn þegar 52 á eru liðin frá komu skipsins til heimahafnar. Veitustjóri hefur verið í orlofi og hefur verið mikil ritstífla á ritstjórnarskrifstofunni, vonandi gefst einhver tími til að bæta úr því, þótt fyrirsjáanlegt stopp verði framm í júní. Lundey verður væntanlega sett á flot um miðja vikuna, verði ekki neinar óvæntar uppákomur. 

 Málningarvinna fyrir helgi.

Veirustjóri kveður eftir páskafríið...................................BK.....................

10.04.2012 09:51

Að loknum páskum.

Góðan dag lesendur góðir. Þá eru páskar afstaðnir og alvaran tekur við. Uppsjávarskipin Ingunn,Faxi og Lundey munu halda til kolmunaveiða eftir stopp undanfarna daga. Vonandi fá lesendur einhverjar fréttir af gangi veiða hér á síðunni, en í dag koma enn nokkrar myndir frá síðustu loðnuvertíð. Endilega skoðið líka í myndaalbúm.


 Beitir NK 123


 Börkur NK 122


 Birtingur NK 124


 Beitir við Skarfabakka


 Börkur NK að draga


 Birtingur NK að kasta.


 Börkur NK 122


Veitustjóri þakkar fyrir og kveður.........................BK..............................

09.04.2012 09:40

Myndir

 Hoffell SU 80      Því miður er þetta eina myndin sem ég tók af Hoffellinu í vetur.


 Jón Kjartansson SU 111

 Jón Kjartansson kastar í hauga sjó. Nær má sjá í korkinn á nótinni.


  Nótin dregin á Breiðafirðinum.


  Aðalsteinn Jónsson SU 11 á Lónsbugt.


 Aðalsteinn Jónsson á fullri ferð á leið á miðin.


  Aðalsteinn Jónsson SU 11 

08.04.2012 12:45

Myndir

  Jóna Eðvalds SF 200


 Jóna Eðvalds


 Ásgrímur Halldórsson SF 250


Ásgrímur Halldórsson


 Grænlenska skipið Erika GR 18 - 119 frá Tasiilaq


 Erika

Veitustjóri hefur tínt nokkrar myndir inn frá nýlokinni loðnuvertíð, þakkar fyrir sig og óskar landsmönnum nær og fjær gleðilegra páska...........................BK.................



06.04.2012 22:07

Myndir.


 Bjarni Ólafsson AK 70

Bjanri Ólafsson dælir yfir í Ölfu FH 32

Þorsteinn ÞH 360 í brælu.


 Þorsteinn


 Þorsteinn ÞH 360 á leið til Þórshafnar með fullfermi

 Júpíter ÞH 363 með fullfermi á leið til Þórshafnar.
 

  Júpiter klár að kasta.


 Júpiter að dæla í ljósaskiptunum.

........BK....

05.04.2012 10:42

Nokkrar myndir

  Álsey VE 2 á Lónsbugt.


 Kap VE 4 að draga á Lónsbugtinni.


 Ísleifur VE 63 að draga á Lónsbugtinni.


 Huginn VE 55 á Lónsbugt.


  Ísleifur VE 63 á Lónsbugt


 Sigurður VE 15 á Lónsbugt


 Kap II VE 7 undan Hnappavöllum


 Guðmundur VE 29 undan Hnappavöllum.

 Kap VE 4 að dæla.


Álsey VE 4


 Guðmundur VE 29


Kap VE 7 að kasta.


 Huginn VE 55 að dæla.

Kveðja....................BK...........

01.04.2012 10:02

Sjómannaafslátturinn ?

Góðan dag lesendur góðir.  Eins og kom fram í gær eru öll uppsjávarskip HB Granda í höfn á Akranesi þar sem sinnt er smávægilegu viðhaldi áður en haldið verður til kolmunnaveiða eftir páska. Eins og flestir vita er komið fram nýtt frumvarp til laga um fiskveiðar. Það nýjasta nýtt sem við höfum frétt eftir áreiðanlegum heimildum, er að til stendur að hækka sjómannaafslátinn úr 493 kr/dag í 987 kr/dag, eins og var 2009. Þetta verður gert til mótvægis við lækkandi fiskverð vegna hækkaðs auðlindagjalds. Þessar upplýsingar höfum við eftir áreiðanlegum heimildum, eða "beint frá býli" þe. Gunarsstöðum. Það fylgdi sögunni að bóndinn ku vera  að fá sérhannaðar  buxur með tengingu milli vinstri og hægri vasa.

  Vilhelm Þorsteinsson EA 11 örugglega fullkomnasta fiskiskip í heimi, skilaði 4,4 miljörðum á síðasta ári og er með 13 kalla í áhöfn. Þeir hafa örugglega unnið fyrir laununum sínum.


  Flutningaskipið Alfa HF 32 á Breiðafirðinum í febrúar.


Veitustjóri kveður að sinni og þakkar fyrir sig..................BK..........

31.03.2012 23:44

Að lokinni loðnuvertíð

Öll uppsjávarskip HB Granda liggja nú á Akranesi að aflokinni loðnuvertíð.

  Ingunn


 Faxi


  Víkingur

 Lundey, Faxi og Víkingur




















22.03.2012 21:04

Fjórir Færeyskir.

  Finnur Fríði FD 86


  Tróndur í Götu  FD 175


 Júpíter FD 42


 Fagraberg FD 1210

21.03.2012 09:37

Reykjavík

  Venus HF 519 


     Vigri RE 71


   Grænlenski togarinn   Steffen C   GR-6-22  áður Pétur Jónsson RE 69


Margir eiga góðar minningar úr Altavík, sennilega samt ekki þessari.  emoticon

19.03.2012 10:39

Myndir.

 Hákon EA 148 frá Grenivík, en Grenivík tilheyrir víst Eyjafjarðarsýslu núna ?


 Júpíter ÞH 363


 Samkeppni á miðunum.  Kap VE 4 að kasta.

 Huginn VE 55 að dæla.

   Birtingur NK 124 að draga. 
   Ef vel er að gáð má sjá Þorgeir Baldursson ljósmyndara uppi á afturgálganum.


  Starri á Akranesi.....þeir eru víst kallaðir lóur á suðurlandinu......

  Frímann sendir sínar bestu kveðjur til lesenda síðunnar..............................
clockhere

Lundey NS-14

Farsími:

8512116

Um:

Fyrri nöfn:Narfi RE,Jón kjartans og Guðrún Þorkellsdóttir SU. Lundey var smíðað árið 1960 sem síðutogari og hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðan þá. Það var endurbyggt árið 1998 og er uppsjávarskip í dag.

Tenglar